Friday, February 03, 2006

Emancipation Proclamation

Ég er á Íslandi.
Það var alltaf ætlunin að mæta til landsins fyrir prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík. En ekki svona fljótt. Ég lét flýta ferðinni. Varð allt í einu eitthvað spenntur. Og núna er ég hér. Ferskur í kosningamiðstöðinni á Austurstræti og vona að Dagur verði sá sem leiði lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Ég reyni alla vega að gera það sem ég get.

Á Íslandi er hlýrra heldur en var í Svíþjóð og snjólaust. "Af hverju ætli þetta sé kallað Ísland" velti ein dönsk kona fyrir sér þegar hún lenti í sömu flugvél og ég.
Ég velti fyrir mér: Ættum við að breyta því? Halda hugmyndasamkeppni? Það gæti verið flott. Nafnið Lundaland myndi líklega verða ofan á.

Salóme systir mín átti afmæli í gær. Óskum henni til hamingju með það.

Lagatexti dagsins er frá Wu tang Clan í tilefni þess að þeir spiluðu í gær í Lundi. Eða, reyndar var það ekki Wu tang Clan heldur Killa beez sem eru einhverjir aðeins meira sillí gæjar. En allavegana. Njóttu vel!

Raw I'ma give it to ya, with no trivia
Raw like cocaine straight from Bolivia
My hip-hop will rock and shock the nation
like the Emancipation Proclamation

3 Comments:

Blogger oskararnorsson said...

Til hamingju, Íslendingar, með að fá Rem Koolhaas, einn fremsta hugsuð okkar tíma, til ráðgjafar um skipulagsmál í Vatnsmýrinni.

Átti Dagur einhvern þátt í þessu?

Fri Feb 03, 09:39:00 AM 2006  
Blogger Grétar said...

Já, Óskar.
Dagur átti allan þátt í þessu! Fólk sem veit eitthvað á þessu sviði er orðlaust hér í Reykjavík. Talað er um að öll dómnefndin sé sterkari hópur en á að vera til ráðgjafar um ólympíuleikana í London

Sun Feb 05, 02:21:00 AM 2006  
Blogger oskararnorsson said...

Það þarf að hafa þetta í frammi. Fólk mun kunna að meta þetta.

Sun Feb 05, 06:24:00 AM 2006  

Post a Comment

<< Home